Auglýsing

Klukkan

Atburðarteljari

Yippee Ki Yay Motherf.

01. júlí 2007 klukkan 23:00
  • Já ég held ég sé að verða sköllóttur, lygi, en ég held ég ætli að byrja að blogga aftur, satt. Þar sem að maður verður kannski á ferð og flugi á næstunni þá er ágætt að láta vita hvað ég er að brasa, fyrir ykkur sem eruð svo ótrúlega spennt yfir því hvað ég er að gera með mitt líf.
  • Kannski að maður renni stuttlega yfir hvað hefur gerst síðan ég brúkaði pennann (okei lyklaborðið) síðast: uuuu... ég tók próf, útskrifaðist, fór að vinna sem flokkstjóri. Auðvitað er svo inn í þessu áfengissögur, fótbolti með Dolles og ýmislegt annað skemmtilegt sem ég nenni ekki að segja frá.
  • Flokkstjóra starfið er að tríta mig ansi vel. Þetta ku vera eitt það besta sumarstarf sem ég hef verið í (kannski ekkert erfitt að toppa rafmenn og póstinn).
  • Fór á Die Hard 4.0 í fyrradag og hún var djeeedjuð. Virkilega góð mynd og Brússi gamli var alveg að meika það sem John McClane, fínt að sjá svona mannlega hetju eftir allar ofurhetjumyndirnar sem ég hef séð upp á síðkastið.
  • Talandi um hetjur, við í Dolles erum að rúlla upp utandeildinni og höfum ekki tapað fram að þessu, við erum í öðru sæti sem stendur, jafnir á stigum og Akureyri sem situr í því fyrsta en það mun breytast þegar að við mætum þeim fimmtudaginn 19. Júlí.. víjúvíjú bíjúvíju.. þá verður sko dansað... eða ekki.
  • Ég vil líkjast Daníel og ég vil líkjast Rut... ég vil taka mér nokkrar sekúndur og tilkynna það að ég þarf ekki að sitja einn einast söngsal aftur í Menntaskólanum á Akureyri. Þó svo að maður eigi eftir að sakna skólans eilítið þá eru söngsalirnir blessunarlega afþakkaðir af minni hálfu... og plebbaleg lög á borð við Hestajóa og heimaleikfimi munu ei meir glamra í hausnum á mér. Yeees.
  • Alveg rétt, ég þarf að rukka Skjá Einn. Ég ,,neyddist” til þess að horfa á þáttinn How Clean is your house sem þátturinn Allt í drasli var eftirminnilega gerður eftir. Þessir þættir eru skelfilegir og glataði ég um 40 mínútum úr lífi mínu þegar ég horfði á þennan viðbóð. Skjár Einn.. það er komið að skuldardögum.. vúúúpáá ( ef þið lesið þetta með tilþrifum þá er þetta hljóðið sem kemur þegar svipu er sveiflað.. prófið... vúúúpáá... sagði ykkur það)
  • Þar sem þessi helgi var róleg þá verður sú næsta tekin með trompi.. eða allavega spaða kóng... vonandi verður eitthvað skemmtilegt um að vera, glöggir einstaklingar mega svo sannarlega benda mér á eitthvað spennandi.. og neii.. kaffi ak er ekkert sérlega spennandi.
  • Ég hef þó uppgvötað það að öll góð fyllerí byrja með pro soccer, Buzz og bjór í góðra manna hópi – þvílík þrenna... já ég sagði það... þvílík þrenna!!!
  • Er einhverjum sem finnst punktablogg leiðinlegt?.. æji exaðu þá þessari síðu því punktarnir verða fleiri kallinn minn.. eða konan mín.
  • Ég er svona að meta það að fara til Danmerkur í íþróttalýðháskóla næsta janúar en ef einhver veit um skemmtilegan fótboltaskóla í Bandaríkjunum þá má hann/hún endilega benda mér á hann.
  • Nenni ekki í háskóla strax og veit ekkert hvað ég á að læra í háskóla.. uppástungur vel þegnar
  • Verður maður svo ekki að enda þetta blogg eins og þorri landsmanna með því að tala um hundinn sem var sparkað til dauða. Mér finnst þetta auðvitað viðbjóðslegt og að menn skuli hafa þetta í sér sýnir þá firringu sem býr í hausnum á ákveðnum einstaklingum í þessu samfélagi.. skííítapakk.
  • En jæja... komið gott... sveijattann.. jeremías og jólaskór og svo framvegis.. kveð að sinni

 

Trausti Þór

Trausti Þór
9 athugasemdir

Eitthvað gáfulegt

20. mars 2007 klukkan 20:57
  • Jæja hvað segiði?... ætti maður einhvern tímann að gerast djarfur og brjóta samfélagsleg viðmið og svara þessari spurningu hreinskilningslega þegar einhver kunningi spyr mann næst... brjóta þetta venjulega ,,hvað segiru?” ,,allt fínt bara”... upp...  það er spurning?.. klikkaður tappi.
  • Ákvað að detta aftur í punktabloggið...
  • Bjór um næstu helgi... víjúvíjúbíjúvíjú!
  • Kvikmyndin 300 err með því flottasta sem ég hef séð í kvikmyndum og treystið mér, ég hef séð þær margar flottar... Myndin er stúttfull af geggjuðum bardagasenum og því mikið augnakonfekt en það er lítil sögukennsla í þessari mynd og ansi frjálslega farið með staðreynir. Því hvet ég Bjössa Viff og Róbó (svölustu sögukennara í mannkynssögunni) til þess að fara ekki á þessa mynd. En á heildina litið – Tryyyyyllt mynd.
  • Heyrðu, ég var að átta mig á því að ég á bara eftir sirka 2 mánuði í MA, þarf að fara að gera eitthvað í lífinu.  -  ferðast eitthvað, skoða heiminn, kveðja firringuna um stund og sjá eitthvað nýtt.. það væri mjög gaman, svo náttúrulega kemur lýðháskólinn Borup í Köben sterklega til greina hjá okkur félugunum.
  • Nennir svo einhver að segja mér afhverju það er orðið voða trend að segja hjá en ekki at(@)... bobbytrust... hjá .... hotmail.com, segiði bara bobbytrust... at(@).hotmail.com!!!
  • Stöndum upp og klöppum fyrir gelluni sem að bakaði yfir tré við skólavörðustíg - http://www.b2.is/?sida=tengill&id=226209 -  Spurning um hvort einhver láti þessa gellu hafa hjálm og strætómiða.. allavega á hún ekki að fá bíllyklana tilbaka, það er alveg á hreinu.
  • Stöndum einnig upp og klöppum fyrir einum af fyrrverandi forstjórum olíufélaganna sem talar endalaust í hringi í Kastljósinu. – ég tel mig ásamt fleirum eiga einhverja bensínlítra inni hjá gæjanum.
  • Sjónvarpsstöðin Sýn er búin að kaupa sjónvarpsréttinn á formúlunni á næsta ári og þeir eru líka búnir að bæta við enska boltanum, því má reikna lauslega með því að áskriftin verði í kringum 100 þúsund krónur á mánuði.
  • Er að verða uppiskroppa með eitthvað til að skrifa um.. gæti komið með djúpar pælingar um lífið og tilveruna.. en kommon.. hver nennir að lesa blogg um það?!?!
  • Heyrðu við þurfum að standa upp enn og aftur og klappa fyrir karl-þulinum á Rúv sem vissi ekki að myndavélin var komin í gang og strauk á sér hárið og pússaði tennurnar, honum á klárlega eftir að líða kjánalega þegar hann sér þetta.
  • Rosalega hef ég gaman af þættinum Skólahreysti.... Nííiiiiii!!
  • Rosalega hef ég líka gaman af þættinum Survivor.. það er sko pottþétt enginn kominn með leið á Survivor... neeeei.
  • Sindri Viðars og Halldór eru að fara taka þátt í söngkeppni MA á fimmtudag. Þessi staðreynd er eitthvað sem er þess verðugt að enda þessa færslu

 

Kveðja Trausti Þór

 

 

Trausti Þór
11 athugasemdir

Untitled

10. mars 2007 klukkan 18:30

Jæja... Fullkomin stund til þess að blogga fyrst að ég sit hérna veikur heima, með blússandi ælupesti, það er án efa versta pestin sem maður getur fengið. Þannig að þessa stundina læt ég mér leiðast, skrifa blogg, borða hafrakex og drekk soðið vatn, lífið gerist vart betra. Ég reyni þó að vorkenna sjálfum mér ekki mikið þar sem maður er minntur á það á hverjum degi, í gegnum fréttir og fjölmiðla hvað ég hef það gott miðað við marga aðra.

Síðasta helgi var algjör snilld. Byrjaði á því að familían fór til Rvk á Fimmtudeginum þannig að ég var aleinn heima sem er með því betra sem gerist. Það var því kjörið að taka létt Fimmtudagsdjamm sem var bara nokkuð gaman, þó ekkert sérstakt að mæta í útihlaup í íþróttum klukkan 8:15 á föstudagsmorgninum. Á föstudeginum fórum við félagarnir á Gettu betur þar sem MA liðið stóð sig mjög vel en tapaði samt sem áður fyrir Versló. Eftir keppnina fórum við heim og drekktum sorgum okkar og kíktum svo út á lífið. Á laugardeginum var svo þessi fylleríshelgi toppuð með allsherjar djammi og drykkju og farið í stútfullan Sjallann þar sem Mr. Páll Óskar þeytti skífum. Sjallinn var alveg pakkaður, aldrei séð svona marga held ég. Í kjölfarið af því fékk þá snilldar hugmynd að næst mæti allir í svona röndóttum, rauðum og hvítum fötum í Sjallann og þá getum við farið í ,,hvar er Valli?” leikinn, hvað væri það mikil snilld??? Það yrði bara valinn einn Valli og svo gæti maður staðið á svölunum og horft yfir dansgólfið og reynt að finna Valla... þvílíkur snilldar leikur sem það væri... kannski einn frír bjór á barnum fyrir þá sem finna Valla. Eru ekki allir klárir í þennan leik???

Talandi um fréttir, (það var enginn að tala um fréttir, langaði bara að byrja greinarskilin svona), þá sá ég frétt í gær frá Akureyri þar sem verið var að tala um svifryksmengun hér á Akureyri sem er langt yfir velsælismörkum. Þar voru ýmsir vegfarendur á Akureyri spurðir út í þetta mál (þar á meðal stöðumælavörðurinn sem er alltaf með Clint Eastwood töffarasvip) og flestir voru sammála um að þetta pirraði þá ekki mikið og ætluðu því ekki að hugsa um þetta. Jæja gott fólk, hvernig væri að hugsa aðeins út fyrir rammann, þó þetta pirri ykkur ekki þá eru ansi margir sem hljóta skaða af þessu, þannig að ég hvet alla til þess að spara bílanotkunina, hvíla rúnthringinn og keyra á heilsársdekkjum þar sem nagladekkin skapa meira svifryk.

Hérna.. spurning hvort að einhver vilji vera jólasveinn dagsins og redda fyrir mig 17 og 18 þætti af Prison Break, sárvantar gott sjónvarpsefni þar sem ég er búinn að horfa á allar Seinfeld seríurnar.

Lag færslunar er Look in The Fire með Pétri Ben og kvikmynd færslunar er Goodfellas fyrir hann Sira minn.

Kveðja Trausti Þór

Trausti Þór
3 athugasemdir

Allt, ekkert og meira til

12. febrúar 2007 klukkan 22:02
  • Ákvað að blogga... hef lítið að gera og þess vegna fínt að gera eitthvað tilgangslaust eins og að blogga... þið þekkið þetta!
  • Er loksins kominn með fartölvuna mína eftir tvær erfiðar vikur án hennar, en það var góð fórn því hann Elvar G gat klippt stuttmyndina sína í henni og nú er allt klárt, bíðum bara eftir því að Steven Spielberg hringi... þú mátt svosem senda  e-mail líka Steven minn ef þú villt.
  • En svona án alls spaugs þá heppnaðist myndin, sem ber nafnið The Stunt, mjög vel og eiga allir sem að henni komu hrós skilið.
  • Talandi um góðar myndir þá er Rocky Balboa ekki góð mynd... vantaði allann kraft í myndina og setningar eins og ,,Yo Adrian, we did it” gerðu útslagið...
  • Hlakka samt til að sjá allar framhaldsmyndinar sem koma á næstunni... Sin City 2, Pirates 3, Die Hard 4, Spiderman 3 (ég veit.. algjört nörd), Indiana Jones 4... er ég að gleyma einhverju???
  • Segðu ekki nei... segðu kannski, kannski, kannski... – ég er ekki frá því að Ingvi Jón félagi minn hafi samið þetta lag

 

Jæja smá kaldhæðnissnúningur á blogginu

 

  • Það eru engar líkur á að Bandaríkjamenn fái neikvæða ýmind af múslimum með því að horfa á 24... neinei
  • Sylvester Stallone er frábær leikari og sést það best í nýjustu Rocky myndinni, þvílíkur leiksigur þar á ferð... hann á klárlega óskarinn skilið
  • Vááá hvað Magni Ásgeirsson er geggjaður tónlistarmaður.. allavega er hann uppáhaldið mitt... algjört Idol
  • ...og talandi um góða tónlist þá er fm957 sko geggjuð útvarpsstöð
  • ...og Heiðar Austmann, sem tryllti lýðinn á kaffi ak um helgina, er sko frábærasti gaur Íslands, þvílíkur töffari þar á ferð
  • .... útkeyrslan hjá póstinum er sko besta vinna sem fyrirfinnst
  • Váá hvað mér finnst strákarnir sem koma í ræktina og fara beint í bekkpressu og svo aftur heim sniðugir, þeir eiga sko eftir að vera heilbrigiðir allt sitt líf, tala nú ekki um ef þeir eru að poppa smá stera í leiðinni, þá fyrst eru þeir gáfaðir

 

og enda þetta svo með alveg ekta bloggfærslugelgjustíl

 

Djísus hva þavar geeeeggja á djamminu um helgina. Við strákarnir vorum eikkah sko í geegjuðu stuði allt kvöldið... BrosandiBrosandiUllandiGlottandiomg hva þavar gaman... byrjuðum þúst eikkað heima hjá gunna skiluru...SvalurBrosandiBrosandiGlottandi fengum okkur í glas ...og já eikkah fórum svo eikkah inn í bæ, dönsuðum alveg geggja mikið eikkah sko skiluru, ohhh það var æðislegt, þið eruð svo mikil æði strákarKossGlottandiUllandiBrosandiBrosandiBrosandi

 

Víjúvíjúbíjúvíu....

 

Kveðja Trausti Þór

 

 


Trausti Þór
14 athugasemdir

Það er bara svoleiðis!

26. janúar 2007 klukkan 01:47
  • Jæja nú held ég að ég skuldi færslu!
  • Efsta á bugi þessa stundina er klárlega hm í handbolta og svo aðsjálfsögðu það að prófin eru loksins búin og gengu eins og segir á góðri íslensku ,,tussu vel”!
  • Var rétt í þessu að horfa á strákana okkar tapa gegn Pólverjum, dómararnir voru nú ekkert sérlega hlutlausir og hallaði dómgæslan þá oft afar mikið á íslenska liðið... og Alli alveg að missa sig eftir leikinn... geðtrylltur Alli Gísla!
  • Það var tryllt próflokadjamm á Ytri vík á mánudaginn sem var bara nokkuð skemmtilegt sko.. sitthvað stendur upp úr... ekki nefnt hér!
  • Bíóhúsin lofa góðu á þessu ári en nú þegar hef ég farið á þrjár geggjaðar myndir síðastliðnar vikur. Children of Men, The Prestidge og Babel voru geggjaðar og hvet ég alla til að sjá þær, sérstaklega tvær fyrrnefndu, ætla svo að skella mér á Blood Diamond og Little miss Sunshine á næstu dögum!
  • Þar sem ég er í fríi núna ætla ég að demba mér í að horfa á alla þá þætti sem mér hefur ekki gefist tími til að horfa á... s.s. Prison Break, heroes, Lost, Seinfeld og margt margt fleira.. ógrynni af góðum sjónvarpsþáttum í boði þessa dagana, alveg ótrúlegt... hér í denn gat maður í mesta lagi horft á Baywatch og Fjör á fjölbraut.... er einhver til í að fara af stað með undirskriftarlista og koma þessum tveimur gullmolum á skjáinn aftur???... ég er til!
  • Einnig er spurning um að halda Pro Soccer mót bráðlega... hverjir þora?
  • Afhverju get ég ekki verið eins og Hannes Smárason? Eða Guðmundur í Byrginu.. hahaha... nei grín.. mig langar ekki að vera eins og Guðmundur í Byrginu, sá maður alveg búin að gera upp á bak og rúmlega það, myndbandið búið að ganga á milli manna á netinu eins og heitar lummur
  • Okei ég ætlaði að vera voða sniðugur og enda þetta á brandara og ,,googlaði” því upp orðinu brandarar og ég ætla að biðja alla þá sem hafa ennþá trú á góðu gildi íslenskra brandara að leika þennan leik ekki eftir... þvílík sjónmengun þar á ferð!
  • Já og svona rétt í lokin ætla ég að minnast þess í um eina mínútu að Liverpool pakkaði Chelsea saman um síðustu helgi ( ........... ) þetta var ljúft!

 

Kveðja Trausti Þór

Trausti Þór
4 athugasemdir

Jól

24. desember 2006 klukkan 22:28
Gleðileg jól og farsælt komandi ár!!!

Sjibbí

Trausti Þór
Trausti Þór
8 athugasemdir

Hingað og ekki lengra!

07. desember 2006 klukkan 04:07
  • Var svona hálf partinn búinn að gleyma þessari síðu... svona næstum því!
  • Búið að vera mikið um að vera í skólanum..samt ekkert rosalegt.. enda á félagsfræðibraut.. what else..
  • Vma í prófum... hamms!
  • Síðastliðinn föstudag voru svo dansbomsurnar pússðar, skellt sér í þjóðbúning og farið á árshátíð MA sem heppnaðist svona stórksemmtilega!
  • Dagskráin var mjög skemmtileg og svo var aðsjálfsögðu tjúttað fram á rauða nótt!
  • Á laugardeginum fór ég svo á Herr Pál Óskar sem var hresst... pakkaður sjallinn.. mjög gaman... þó ekki jafn gaman þegar ég leit á stöðu mála á debetkortinu mínu.. það fékk heldur betur að finna fyrir því á barnum.. en kommon... svona er þetta bara... you only live once.. except for James Bond, he lives twice!
  •  Ojj hvað tikktakk brauðstangir eru orðnar vondar... eða allavega finnst mér það.. ætti kannski að prófa að smakka þær edrú... kannski...!!
  • Timbó Sunnudagur!
  • Slappur Mánudagur!
  • Munnlegur ensku Þriðjudagur sem gekk bara ágætlega... samt alltaf jafn leiðinlegt í munnlegum prófum.. einn með kennaranum.. horfir á mann eins og hann ætli að drepa mann.. nema hún hafi verið að pæla í því hvernig ég liti út nakinn.. hver veit?!?!
  • Var að lesa einhversstaðar að þú eyðir 4 mánuðum af ævi þinni sitjandi á klósettinu... sjiii.. og þið voruð að tala um að reykingar stytti lífið... djííí!!
  • Á ég að þora á Saw 3.. hver kemur með? Chicks only... djóóóók!!
  • Var að horfa á sjónvarpið áðan og sá að það er verið að sýna America next top model seríu 7... hvað er málið??? Búiði frekar til nýja seríu af Fjör á fjölbraut... það voru sko tussugóðir þættir.. man ekki einhver eftir því?
  • http://www.filecabi.net/video/blowupdoll18.html - hahahahaha ... busted!
  • Er farinn að hlakka til jólanna.. og tala nú ekki um áramótin.. víjú!!
  • Heiðurs maður bloggsins er Ingvi Jón fyrir að koma að sækja mig og fara í brynju eins og ég bað um í síðasta bloggi.. Til hamingju Invi John!!
  • Nenni ekki meir!
  • Dansaðu fíflið þitt, dansaðu! 
 Trausti Þór
Trausti Þór
24 athugasemdir

Ég hugsa ekki, þess vegna er ég!

13. nóvember 2006 klukkan 19:11

·       Jæja, skýrsla!

·       Helgaruppgjör!

·       Omg þúst helgin var gegt skemmtileg skilurru… nei djóók… ég tala ekki svona.. talar þú svona.. nei, hélt ekki!

·       Þessi helgi var.. tjaa forvitnileg!

·       Mikið áfengi, lítil meðvitund.. ætla að öllum líkindum að hafa þetta tvennt öfugt næst, allavega fara einhvern milliveg!

·       Sindri skemmti sér vel edrú.. NOT !

·       Ingvi var fullur!

·       Gunni var fullur.. hvað annað!

·       Ytri vík var fönn!

·       Sjallinn var súr!

·       Dræverinn í Sjallann var hot! Dræverinn hljómar samt sem karlmannlegur einstaklingur en svo var ekki.. djöst tú kíp þíngs ræght...

·       Eyrún og Kolla voru hressar… skillst mér (er ufselon í skillst? Semsagt skyllst?.. tja maður spyr sig…)

·       Sunnudagsveikin gerði vart við sig og ekki skánaði það þegar nokkrir táfýlusparkarar sem kalla sig atvinnumenn gerðu upp á bak gegn Arsenal

·       Það væri nú ágætt ef hann Benni minn færi að setja hann Stebba minn inn á miðjuna í staðinn fyrir að einangra hann alltaf úti á kantinum!

·       Bíóferð gerði svo útslagið þessa helgina en myndin fly boys stóðst bara ágætlega undir væntingum mínum.. kannski full mikil klisja!

·       Sálfræði

·       Lítil einbeiting.. enda er ég að skrifa þetta blogg… daaa¨!!

·       Bjarni kennari fær ekki mikla athygli frá bekknum!

·       Blame the tæknivæðing!

·       Ég er virkilega svangur og/eða þreyttur.. meikar lítið sens!

·       Nenni ekki meir!

·       Síðasti séns til að koma og ná í mig og fara með mig í Brynju… Sénsin gildir út vikuna lesandi góður! Ég skal borga í blíðu minni… kannski…

·       Bið að heilsa

  

Trausti Þór

Trausti Þór
18 athugasemdir

Jack Nicholson

01. nóvember 2006 klukkan 01:14
  • Eyrún... bara fyrir þig!
  • Skítakuldi úti
  • Fór á Bjarg áðan, það var stuð... skíðað mikið... flogið á hausinn á jafnvægistæki og meira fönn
  • Útborgunardagur á morgun... sweet... what does mine say.... dude...what does mine say... sweet... smá flashback úr dude, where is my car... skondin kvikmynd!
  • Horfði á fréttir fyrir þremur mánuðum síðan og þá var eitthvað verið að tala um hlerunarmál í gamla dag... er að horfa á þær núna og viti menn, það er ENNÞÁ verið að tala um þetta.. Get over it you freaks
  • Seinfeld að byrja, dýrka Seinfeld - hata hins vegar breskt raunveruleikasjónvarp - sérstaklega þarna feitu barnapíuna... langar að æla á hana... samt ekki... æli ekki á fólk
  • Skólinn í dag var súr, pínu námsleiði... Eyrún bjargaði þó sálfræðinni og heimspekinni með skemmtilegum myndum og fleira sprelli... Takk fyrir það!
  • Tónlist - Seventeen Years (Ratatat) og Shipping up to Boston (lagið úr The Departed)
  • The Departed hell yeaah, ætla aftur á hana í þessari viku - einhver með? (chicks only)... djóók
  • Colin Sullivan: I´m Irish, I´m going to have to deal with something being wrong the rest of my life 
  • Colin Sullivan: You got a suit at home or do you like coming to work everyday dressed like your goin to invade Poland
  • Frank Costello: One of us had to die. With me, it tends to be the other guy.
  • Oliver Queenan: You´re rising up fast                                                                          Dignam: Yeah, like a 12 year-old´s dick
  • Dignam: Who am I? I´m the guy that does his fuckin´ job! You must be the other guy!
  • Sjúklega góð mynd.....
  • Hérna ef einhver nennir þá má hann/hún koma og ná í mig og fara með mig í Brynju, langar mjööög mikið í brynjuís núna... nenni samt ekki að labba alla leið niður eftir...
  • Uuuu... Hérna... jaaaaá ég kveð bara að sinni

Trausti Þór

Trausti Þór
16 athugasemdir

Alveg eins

28. október 2006 klukkan 23:22
hérna....

nýtt blogg..

hvað um það...

engar hugmyndir..

Bæ..

Trausti Þór..

Trausti Þór
7 athugasemdir